14. - 18. maí
11.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Þetta er málið, lesbók 2 bls. 32-35. Vinnubók 2 bls. 56-59 málfræði.
Stærðfræði: Stika 1b nemendabók, Almenn brot bls. 42-50 ásamt viðeigandi efni í æfingahefti.
Samfélagsfr.: Land og líf.
Náttúrufræði: Lífríki í sjó 1. kafli, Hafsjór.
Enska: Unnið í Work out og Speak out
Tilkynningar:
- Á miðvikudaginn förum við í heimsókn í Náttúrugripasafnið í Bolungarvík. Mæting er í skólann kl. 8:00 og leggur rútan af stað kl. 8:30. Allir þurfa að hafa morgunhressingu meðferðis og vera vel klæddir , þar sem við stefnum á fjöruferð eftir heimsóknina á safnið. Við komum svo til baka um hádegisbilið. Þeir sem eru í mataráskrift fara þá beint í mat og heim að því loknu. Aðrir geta haft með sér hádegisnesti og borðað í matsalnum fyrir heimferð, eða farið beint heim þegar við komum frá Bolungarvík.
- Á fimmtudaginn er uppstigningardagur og ekkert skólahald.
|
Heimanám
Íslenska: Framsögn – hver og einn æfir u.þ.b. 15 línur að eigin vali til upplesturs, ljóð eða textabrot.
Stærðfræði: Merkúríus bls. 15.
|
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








