13. - 17. október
10.10.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 5. bekkur
13. - 17. okt. 2014
Íslenska: Þetta er málið, lesbók 1 bls. 28-29, Tólf eru synir tímans ásamt vinnubók bls. 28-32, nafnorð, greinir o.fl. Hljóðlestur.
Stærðfræði: Stika 1a – Nemendabók bls. 33-37, samlagning og frádráttur, kaflinn kláraður.
Samfélagsfræði: Ísland, veröld til að njóta – Landshlutar. Nemendur vinna í hópum, hver með sinn landshluta og gera honum ítarleg skil næstu vikurnar.
Náttúrufræði: Auðvitað 1 bls. 24-29, kraftar – verklegar æfingar.
Enska: Speak out bls. 10-11 og Work out bls. 17-19, Clothes.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan – þarfir okkar og hlutverk.
Tilkynningar:
- Vel gengur í áætlanagerðinni í íslensku og stærðfræði og eru nokkrir nemendur komnir á undan. Það er allt í góðu að sjálfsögðu og fá þeir að halda áfram óhikað. Þeir sem ekki hafa náð að klára vikuskammtinn af einhverjum ástæðum, hafa tekið viðeigandi bækur heim til að vinna upp það sem út af stendur.
- Á mánudaginn verða skipti í hringekjuhópum.
- Tæknimennt (smíði) fer í textílmennt (handavinnu)
- Textílmennt fer í upplýsingatækni
- Upplýsingatækni fer í heimilisfræði.
- Fimmtudaginn 16. október er ,,bleikur dagur“ sem tileinkaður er baráttunni gegn krabbameini hjá konum. Við hvetjum alla til að sýna samstöðu og mæta í einhverju bleiku þann dag ef hægt er.
- Föstudaginn 17. október og mánudaginn 20. október er vetrarfrí. Þar ofan á bætist svo starfsdagur þriðjudaginn 21. október þannig að nú er aldeilis löng helgi framundan.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








