12. – 16. maí 2014
09.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Síðasta leshraðaprófinu er lokið og gulu blöðin hafa verið send heim. Við þurfum ekki að fá þau til baka.
Í vor gerum við ráð fyrir tveimur hjólaferðum, annarri fimmtudaginn 22. maí og hinni mánudaginn 26. maí. Okkur skilst að allir hafi aðgang að hjóli og hjálm.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði vinnum við í Byrjendalæsi, samþætt íslensku.
Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram í Komdu og skoðaðu þjóðhætti.
Í stærðfræði verður unnið áfram í Sprota 4B. Við gerum ráð fyrir að flestir ljúki bls. 109 í vikunni.
Í íslensku höldum við áfram í PALS. Þetta átak verður fram að skólalokum. Við vinnum líka í Byrjendalæsisverkefninu um fjöruna. Að auki verður skrift.
Nemendur fá texta fyrir framsagnarpróf svo þeir geti farið að æfa sig fyrir prófið sem verður þriðjudaginn 20. maí.
í ensku rifjum við upp það sem við höfum lært í vetur og vinnum verkefni sem gilda til einkunnar.
Svo fara nemendur líka í hringekju, leikfimi, sund, dans, tónmennt, myndmennt og útiveru.
Kveðjur,
Árný og Laufey








