12. - 20. desember 2011
09.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska: Vinnubók 1 kláruð, skrift og lestur.
Stærðfræði: Stika 1a nemendabók Tugabrot, bls. 72-77 ásamt æfingahefti.
Samfélagsfr.: Trúarbragðafræði – Brauð lífsins, aðventan.
Náttúrufræði:
Auðvitað 1, - Sól, jörð og tungl bls. 35-41.
Enska:
Unnið í Work out og „speak out“
Tónmennt: Sungin jólalög.
Upplýsinga-
Tölvur: Jólavefir skoðaðir
tækni.:
Skólasafn: Verkefni við réttritunarorðabók.
Tilkynningar:
-
Næsta vika einkennist nokkuð af jólaundirbúningi.
5. bekkur er nú í óða önn að klára jólakortið sitt til allra skólafélaganna. Það kemur í hlut árgangsins að ganga í alla bekki dagana 13. – 16. desember og lesa á jólakort frá öllum bekkjardeildum skólans. - Á þriðjudaginn verður hinn árlegi og skemmtilegi Tarzan leikur í íþróttum kl.8:00-8:40.
- Venja er að nemendur skiptist á smá jólapakka á litlu jólunum og biðjum við nemendur að skila þeim til okkar innpökkuðum í síðasta lagi á föstudaginn. Pakkinn má kosta allt að 500 kr.
Síðustu dagarnir fyrir jólaleyfi:
-
Mánudaginn 19. desember er skreytingadagur og skóli frá
kl. 8:00 – 12:00. – Strætó fer um kl. 12:10. - Þriðjudaginn 20. desember eru litlu jólin.
Nemendur mæta spariklæddir kl.9:00 með smákökur og fernudrykk. Skóla lýkur kl. 12:00 og þar með hefst jólaleyfi. Strætó fer klukkustund síðar en venjulega að morgninum, þannig að allir eiga að geta nýtt sér það. Hann fer til baka heim aftur um kl. 12:10. - Kennsla hefst að jólaleyfi loknu miðvikudaginn 4. janúar 2012 kl. 8:00.
Við óskum ykkur öllum gleðilegrar jólahátíðar,
Auður og Helga.








