12. - 16. mars
09.03.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkur
12. – 16. mars
Því miður varð ekkert af sleðadeginum en við reynum aftur við fyrsta tækifæri.
Orð vikunnar: Munaðarlaus, huglaus og djarfur.
Verkefni vikunnar:
Íslenska: Harry Potter þema verður í íslensku fram að páskum. Við höfum verið með Harry Potter og viskusteininn sem nestissögu og langar að vita meira um þennan kappa. Við munum ferðast í huganum um í Hogwart-skóla og á þeirri ferð lendum við í ýmsum ævintýrum og þrautum. Þá er gott að taka vel eftir og læra af Harry Potter og félögum hvernig best er að glíma við skólaverkefni, galdra og forynjur .
Stærðfræði: Sproti 3B bls. 58 – 69 rúmfræði og almenn brot.
Samfélagsfræði: Í sveitinni með Æsu og Gauta, loðdýr, hænsni og svín.
Náttúrufræði: Komdu og skoðaðu himingeiminn bls. 14 -15.
Tónmennt: Söngur dýranna í Týról og Reikistjörnurnar hringsnúast
Lífsleikni: uppbyggingarstefnan
Einnig förum við í smíðar, heimilisfræði, textílmennt, myndmennt, íþróttir og dans.
Heimavinna
Úr undirdjúpunum skv. stimpli
Stafsetning: Skrifa texta í skriftaræfingarhefti, vanda skriftina, skoða orðin vel, passa upp á stóran og lítinn staf og muna eftir punktunum. Við notum síðan textann í stafsetningaræfingu á föstudaginn.
Lestur daglega.
Fimmorðabók a.m.k. þrisvar í viku.
Kær kveðja, Helga








