12.12-20.12 2011
09.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun í 6. bekk
12.12 – 16.12 2011
- Þetta verður síðasta vikuáætlun ársins. Jólafrí hefst miðvikudaginn 21. desember og byrjar skólinn aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. janúar.
- Jólapökkum fyrir Litlu jólin þarf að skila á miðvikudag , hámarksverð er 500 kr.
- Hinn árlegi Tarzanleikur verður í Torfnesi á þriðjudaginn.
Íslenska: Jólabókin mín.
Stærðfræði: Geisli 2A, grunnbók, bls. 56-58
Geisli 2A, vinnubók bls. 44-45
Samfélagsfræði: Sögueyjan: menning bls. 65-70
Náttúrufræði: Lífríkið á landi, melar og sandar bls. 60-67
Kristinfræði: Ljós heimsins, bls. 52-56
Upplýsingatækni: Tölvur, Verkefni með réttritunarorðabók.
Enska: Build Up
Lífsleikni: Aðventustund – Hirðakertið.
- 19.-20. desember
- Mánudaginn 19. desember verður skreytingardagur í skólanum, þá koma nemendur með nesti og föndurvörur. Þann dag falla sérgreinar niður. Skólanum lýkur kl. 12:00. Strætó fer kl. 12:10.
- Litlu jólin verða frá 9:00 – 12:00 þriðjudaginn 20. desember. Nemendur koma spariklæddir með nesti (smákökur) og drykk (ekki gos). Strætó fer kl. 12:10
5 orð vikunnar: Finna orð sem tengjast jólunum
Heimavinna
Mánudag: Lestur
Þriðjudag: Lestur
Miðvikudag: Lestur
Fimmtudag: Lestur
Föstudagur: Lestur
Krakkarnir mega koma með notaðan jólapappír, jólakort og merkispjöld. Einnig mega þau koma með glimmer og límmiða. Allir þurfa að vera með skæri og límstifti í föndurtíðinni.
|
Jólakveðja, Erna Sigrún
og Margrét








