12.-20. desember
02.12.2011 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 7. bekkjar
12.-16. desember 2011
Við minnum á nýju heimasíðu skólans http://grisa.isafjordur.is/
- Ef eitthvað er til heima sem hægt er að nota í jólaföndur, s.s. bönd, litríkir bæklingar, afgangs jólapappír o.fl. er það vel þegið.
- Við æfum jólalögin og leggjum sérstaka áherslu á Heims um ból, Hin fyrstu jól og Guðs kristni í heimi.
- Hefð er fyrir því að nemendur skiptist á jólapökkum á litlu jólunum. Hámarksverð er kr. 500 og þarf að skila pökkunum í síðasta lagi á föstudag.
Íslenska: Próf úr Málrækt á þriðjudag. Verkefni tengt jólum.
Ljóð: Heims um ból, Hin fyrstu jól og Guðs kristni í heimi.
Stærðfræði: Könnun úr brotum á mánudag. Geisli 3 bls. 42-47, Líkur.
Samfélagsfr.: Kristinfræði.
Náttúrufræði: Auðvitað 3 bls. 40-50, Orka og orkunotkun.
Danska: Jóladagatal og önnur verkefni.
Enska: Myndband.
Lífsleikni: Söngur og föndur.
Mánudaginn 19. desember verður skreytingardagur í skólanum, þá koma nemendur með nesti og föndurvörur. Þann dag falla sérgreinar niður. Skólanum lýkur kl. 12:00. Strætó fer kl. 12:10.
Litlu jólin verða frá kl. 9:00 – 12:00 þriðjudaginn 20. desember. Nemendur koma spariklæddir með nesti (smákökur) og drykk. Strætó fer kl. 12:10. Mötuneytið verður lokað þessa daga.
Jólafrí hefst miðvikudaginn 21. desember og byrjar skólinn aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 4. janúar.
Gleðileg jól,
Hafdís og Hlíf
Vinnuáætlun 7. bekkjar
5.- 9. desember 2011
- Við minnum á nýju heimasíðu skólans http://grisa.isafjordur.is/
- 6. desember verður rauður dagur í grunnskólanum og eru þá allir hvattir til að klæðast einhverju rauðu.
- Ef eitthvað er til heima sem hægt er að nota í jólaföndur, s.s. bönd, litríkir bæklingar, afgangs jólapappír o.fl. er það vel þegið.
Íslenska: Málrækt, lýsingarorð bls.49-58. Próf úr Málrækt í næstu viku.
Ritun.
Ljóð: Textar úr jólasöngbók.
Stærðfræði: Hringur 2, almenn brot, tugabrot og prósentur.
Samfélagsfr.: Miðaldafólk á ferð, Silkileiðin bls. 20-23 Kristinfræði, koma með Nýja testamentið.
Náttúrufræði: Auðvitað 3 bls. 36-39, leysni.
Danska: Unnið og sett fyrir í tíma.
Enska: Going places, ýmis verkefni.
Lífsleikni: Hlutverkin. Jóladagatal.
Gáta vikunnar:
Ég er gömul gata í Höfn.
Grannt með tveimur endum.
Óbreytt stefna yfir dröfn.
Oft með skömm við lendum.
Komið með lausn til kennara í síðasta lagi á föstudag.
Bestu kveðjur, Hafdís og Hlíf








