11. - 18. okt.
11.10.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun
4. bekkur
Við vinnum samkvæmt Byrjendalæsinu í ísl. og byrjum á bók sem heitir Sögusteinn. Hver og einn vinnur í stærðfræðinni í eigin bók.
Föstudaginn 18. okt. og mánudaginn 21. okt. er vetrarfrí í skólanum .
Þriðjudaginn 22. okt. er starfsdagur kennara.
Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði verður unnið með veðurathuganir, árstíðirnar og kíkjum á
jarðskjálftavirkni landsins.
Í samfélagsfræðinni verður fjallað áfram um mannkynssöguna og kannski örlítið um
umferðina. Mannkynssagan verður á áætlun í nokkurn tíma.
Í stærðfræði vinnum við áfram í Sprota á einstaklingsgrundvelli.
Í íslensku förum við í byrjendalæsi,byrjum á Sögusteini. Það verður stöðvavinna og við
komum okkur upp bekkjarreglum.
Í enskuverða orð skoðuð út frá náttúrunni, samþætt upplýsingatækni.
Í myndmennt hefur annar hópurinn verið að teikna myndir úr ævintýrum og við ákváðum að
nemendur gerðu ramma utanum eftirprentun af sinni ævintýramynd. Næst verður
farið í að stimpla/mála myndir með ávöxtum og grænmeti.
Svo fara nemendur líka í hringekju, tónmennt, íþróttir, dans og útiveru.
Við höfum heyrt frá nokkrum foreldrum og okkur heyrist að best væri að setja
vinnuáætlunina á grisa.is og sem viðhengi í föstudagsbréfi. Þá væri gott að
heyra frá ykkur hvort þetta sé besta fyrirkomulagið.
Kveðjur
Árný og Laufey








