11.-15. maí
08.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
11.-15. maí 2015
- Á mánudag má koma með lítinn bíl sem við ætlum að nota á Þriðjudag til að mæla hvað hann rennur langt. Við munum nota bílinn í úti-stærðfæði

- Á þriðjudag taka krakkarnir síðasta hraðlestrarpróf vetrarins, sem er sami texti og það fyrsta sem þau tóku í haust.
- Á miðvikudag byrjar útleikfimin og þá er gott að vera klæddur eftir veðri.
- Á föstudag verður samvera með 3. bekk en núna ætlar 2. bekkur að vera atriði og sýna fyrir hina :) Gott er að æfa sig heima fyrir framan fjölskylduna

- Í næstu viku taka þau próf í lesskilning (18.05.) skrift (19.05) og stærðfræði (20.05).
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Byrjendalæsi: Við vinnum með bókina Gula sendibréfið eftir Sigrúnu Eldjárn. Við vinnum með eftirfarandi þætti: fj- samhljóðasambandið, lestur, orðaforða, skrift , stóran og lítinn staf. Kynnum ýmsum hlutvrkum ritunnar, s.s. bréf, sögubók og innkaupalista.
Stærðfræði: Rifja upp; Flatamál, ummál, lengdarmælingar og Í undirdjúpum.
Útikennsla: Verkefni og leikir tengd viðfangefnum í stærðfræði vikunnar (ummál, falatarmál og lengd).
Tónmennt: Samsöngur og Fram, fram fylking.
Einnig förum við í útivist, sund, úti-leikfimi, dans og tæknimennt/myndmennt.
Heimavinna
- Lestrarsprettur: Fimman og skráningarblaðið :)
Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Kveðja,
Kristín og Hrafnhildur








