10. mars – 14. mars
10.03.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
10. mars – 14. mars
Í þessari viku tökum við fyrir eftirfarandi:
Byrjendalæsi: Komdu og skoðaðu líkamann. Ýmis verkefni unnin í tengslum við bókina
Stærðfræði: Sproti 2b, reikningur með tölum upp í 100
Lífsleikni: Trúarbrögðin okkar.
Einnig förum við í íþróttir, upplýsingatækni, dans og hringekju.
Heimavinna - Lestur daglega.
Nú fer að líða að árshátíðinni okkar en hún verður haldin dagana 27. og 28 mars. Eins og gefur að skilja munu næstu vikur nokkuð markast af árshátíðarundirbúningi og viljum við biðja ykkur um að taka vel í væntanlegt kvabb okkar kennara um búninga og slíkt.
Bestu kveðjur,
Jón Heimir og Sigþrúður








