10. feb.- 14. feb.
07.02.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Viðfangsefni vikunnar eru eftirfarandi:
Í náttúrufræði höldum við áfram að læra um hafið. Við kynnum okkur líka strandlengju Íslands og sjávarútveginn nú og áður fyrr.
Í samfélagsfræðinni vinnum við áfram verkefni um lifnaðarhætti í Afríku og byrjum á að skoða húsakost þar.
Í stærðfræði vinnum við bls. 21-26 í Sprota 4B, sem er margföldun og deiling.
Í íslensku verður hefðbundin vinna, lestur, skrift og ýmis verkefni unnin samkv. Byrjendalæsi. Við lesum Sögustein og gerum verkefni úr þeirri bók. Áfram verður áhersla á ljóðalestur og æfing á upplestri ljóða.
Í myndmennt er skemmtileg skrímslavinna í gangi og við erum að búa til skuggabrúður og leikrit sem við ætlum að sýna.
Upplýsingatækni verður samþætt ensku og náttúrufræði.
Í ensku tökum við orðaforða um dýr í köldum löndum.
Svo fara nemendur líka í hringekju, dans, tónmennt, sund, leikfimi og útiveru.
Bestu kveðjur,
Árný og Laufey








