10. - 14. nóvember
07.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Íslenska:
Þetta er málið, lesbók 1 bls. 42-43 Gamla tréð og glaðlega fuglahræðan
ásamt vinnubók bls. 45-48 ljóðstafir, rím, kyn nafnorða o.fl. Hljóðlestur og ritun.
Stærðfræði: Stika 1a – Nemendabók, bls. 66-69 tugabrot.
Samfélagsfræði: Ísland, veröld til að njóta – Landshlutar. Nemendur vinna í hópum, hver
með sinn landshluta og gera honum ítarleg skil næstu vikurnar.
Náttúrufræði: Auðvitað 1 bls. 39-43, Vélar.
Enska: The alphabet, Speak out page 12-13, Work out page 20-22.
Lífsleikni: Uppbyggingarstefnan – Unnið gegn einelti.
Tilkynningar:
- Á miðvikudaginn er foreldradagur. Tímapantanir eru í gegnum mentor.is og geta foreldrar valið sér tímasetningu þar.
Við minnum á sjálfsmatseyðublað sem nemendur hafa tekið með sér heim og eiga að skila útfylltum í foreldraviðtölunum. - 8. nóvember er dagur gegn einelti og munum við gera verkefni tengd einelti í næstu viku. Einnig mun Elísabet Lorange listmeðferðarfræðingur og kennari koma í heimsókn til okkar, en hún hefur starfað mikið að sjálfstyrkingu.
- Nú förum við að huga að jólaföndri og auglýsum eftir 1 lítra mjólkurfernum og ½ lítra fernum. Hver nemandi þarf helst að koma með eina stóra og tvær litlar.
Heimanám: Daglegur lestur.
Bestu kveðjur,
Auður og Helga








