100 daga hátíð

25.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag var líf og fjör í 1. bekk því í dag var hundraðasti skóladagurinn okkar.  Við æfðum okkur að telja upp í hundrað með því að gera ýmsar æfingar.  Svo dönsuðum við, hoppuðum og skoppuðum og enduðum daginn á að horfa á myndband og borða popp.  Alltaf svo gaman í skólanum!