10.-14. nóvember
07.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur
10.-14. nóvember
- Foreldraviðtöl verða miðvikudaginn 12. nóvember.
- Við biðjum ykkur um að athuga með skriffærin hjá krökkunum. Mikið hefur verið um það að blýantur, strokleður og yddari sé ekki til staðar og þá fer mikill tími í snúninga og vesen.
Viðfangsefni vikunnar er m.a.
Íslenska: Unnið með bókina Hver er sterkastur? eftir Mario Ramos. Markmið vikunnar er að nemendur auki orðaforða sinn sem athugun á samsettum orðum, æfi hljóðgreiningu á samhljóðasambandið –sk, dragi rétt til stafs og æfi notkun á há- og lágstöfum og orðabil.
Stærðfræði: Sproti 2a, Æfingahefti; Kafli 10. Reikningur með tölum upp í 100. Við stefndum niður bls. 57 í nemendabók, ásamt æfingahefti og aukabókum.
Tónmennt: Á íslensku má alltaf finna svar og Gráðug kerling.
Lífsleikni: Þarfirnar (umhyggja, öryggi,frelsi), frímínútur.
Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, heimilisfræði og upplýsingatækni.
Heimavinna
- Lestur daglega.
Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Kveðja,
Kristín og Ingibjörg








