1.-5. desember

26.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 2. bekkur


1.-5. desember


 



  • Á miðvikudaginn er opin dagur í skólanum og þá eru foreldrar sérstaklega velkomnir í skólann en að sjálfsögðu eru foreldrar alltaf velkomnir :) 

  • Mikilvægasta verkfærið í skólanum er blýantur og slæmt ef hann er ekki í pennaveskinu…………. 

  • Við förum smá saman að undirbúa okkur fyrir jólin og skreyta í kringum okkur. Í næstu viku verðum við með aðventustund og opnum fyrstu gluggana á jóla-daga-talinu okkar. 


 


Viðfangsefni vikunnar er m.a.


 


Íslenska:                  Unnið með bókina Jólaleg jól eftir Sigrúnu Eldjárn. Markmið vikunnar er að nemendur auki orðaforða sinn, lestur, lesskilning, samsett orð og  vinna með orðasambandið –jó.


Stærðfræði:                    Sproti 2a, Æfingahefti; Kafli 11, flatarmál. Vinnum bls. 70-75 í nemendabók, ásamt æfingahefti og aukabókum.


Tónmennt:              Jólalög og samsöngur.


Lífsleikni/Kristinfræði: Regnboginn og aðventustund.                


 


Einnig förum við í útivist, sund, íþróttir, heimilisfræði og textílmennt.



Heimavinna


-       Lestur daglega.


Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.



 


 


Kveðja,


Kristín og Ingibjörg